Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Upprifjanir vegna dauðadómsins

Eins og ég benti á í gær er þessi Nurnbergdauðadómur fyrst og fremst pólitík, frekar en dæmigerður refsiréttur og á því ekki beint erindi inn í fordæmingar á dauðarefsingar í Bandaríkjunum.

En úr því málið er frágengið og úr því ég var að minnast á þetta í gær er trúlega ekki úr vegi að rifja upp tvær gamlar fréttir sem lítið fór fyrir á alþjóðavettvangi sem báðar fjalla um pólitískar vílingar og dílingar um lífsmöguleika kallsins. 

fyrri er úr Telegraph. Samkvæmt henni voru grið fyrir Saddam meðal þess sem leiðtogar uppreisnarmanna úr röðum súnnímúslima ræddu um í tilboði sem þeir gerðu ríkisstjórninni, og var þá íhugað alvarlega af henni. 

"We are trying to reach out to the insurgents," segir heimildarmaður blaðsins, sem það segir háttsettan í ríkisstjórninni. "We don't expect them to stop fighting unconditionally. Sending Saddam to prison for the rest of his life is not a huge price for us to pay, but it will save them a lot of face."

síðari birtist nokkru síðar í The Peninsula online. Þar segir að Rumsfeld hafi boðið Saddam frelsi og hugsanlega endurkomu á opinberan vettvang gegn því að hann flytti sjónvarpsávarp bæði uppreisnarmenn að leggja niður vopn. 

Saddam neitaði því snarlega. 

Þessar fréttir koma að sjálfsögðu báðar fram áður en réttarhöld og fyrirkomulag þeirra var ákveðið - en þær sýns hins vegar glöggt pólitíkina sem var í gangi.  Örlög Saddams voru fyrst og fremst pólitískt úrlausnarefni, og niðurstaðan úr því varð sú að láta fara fram réttarhöld sem fyrir lá að myndu leiða til dauðarefsingar.

Það mun væntanlega hafa einhverjar pólitískar afleiðingar þegar hann verður framkvæmdur til fullnustu. Og sjálfsagt væri hyggilegt að fullnusta hann sem fyrst.  

Og spurningin er hvort máttur uppreisnarinnar hafi verið vanmetinn á sínum tíma - að ef til vill hafi það verið pólitísk mistök að efna til þessa réttarhalds, og fá síðan kveðinn upp dauðadóm, á sama tíma og það er samdóma álit manna að Bandaríkin séu búnir að missa öll tök á stjórnmálaástandinu.  


mbl.is Dauðadómurinn yfir Saddam þarf ekki staðfestingu forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptahugmynd ársins?

Í stuttu máli: Þú býður einhverjum, til dæmis pizzastað, að senda jólakveðju á réttum tíma. En síðan verða óviðráðanleg mistök og afmæliskveðjan kemur á versta mögulega tíma. Svo að "verkkaupinn" neyðist til að kaupa hjá þér aðra sendingu af SMSum strax eftir jól þar sem hann biðst afsökunar. 

Síðan má sjálfsagt bjóða nýárskveðjur með afslætti líka. :) 


mbl.is Biðjast afsökunar á sms-um
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blasir við já

Er það kannski þvæla í mér, eða má hugsanlega mögulega kannski lesa eitthvað út úr því að JónB tekur enga afstöðu í deilunni sjálfri og segir ekki stakt orð sem túlka má sem stuðning við flumferðarstjórana?

Þetta lyktar eins og ódýrt kosningatrix. 


mbl.is Krefst fundar í samgöngunefnd vegna flugumferðarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert Domínós hjá mér

Ég er mjög ósáttur. Domínós sendi mér engar jólakveðjur og samt er ég alveg fastakúnni hjá þeim. 

Live by the sword ...

Hvað á manni að finnast um dauðadóm yfir Saddam Hussein? Pólitískar afleiðingar af dauða hans eru trúlega áhugaverðari en dauðadómurinn sjálfur. Verður mótmælaalda. Hefja Súnníar Tetsókn?

Hvað sem klórinu líður er þetta pólitík, frekar en refsimál. Það hljóta að gilda þar svolítið aðrar reglur og það á kannski ekki beinlínis við að ræða dauðarefsingar kananna í samanburði.


mbl.is Dauðadómur yfir Saddam Hussein staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðja frá Intrum

Skyldu margir af viðskiptavinum Intrum hafa fengið link á þetta flash í tölvupósti.  Með þökk fyrir góð samskipti á árinu sem er að líða! Halo

Gott að það komst á hreint?

Líklega er það gott að það komst á hreint. Eða hvað?

Ég meina hvað á manni að finnast. Á maður að vona að kallinn drepist fólksins vegna. Eða á maður að vona hann komist fljótt á ný til heilsu og valda, af því hann er manneskja.

Sjálfsagt væri best hann missti völdin en héldi heilsunni - eða svona því sem eftir er af henni. 

Síðan hvenær er Húgó Chavez annars orðinn spænskur skurðlæknir?


mbl.is Segir Kastró ekki með krabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vibbakommenti svarað?

Ágætur maður sem ég tek mark á benti mér á þau augljósu sannindi um jólin að ég mætti nú ekki standa í því að breiða út misskilning um sjálfan mig með því að leiðrétta ekki það sem rangt væri sagt. Svo að líklega er best að taka fyrir það í eitt skipti fyrir öll að ég var ekki látinn fara af Fréttablaðinu eftir tvo mánuði, heldur var þar í það heila í rúma fjóra mánuði. 

Við Sigurjón vorum reyndar í meira en hálfan mánuð búnir að minnast á það ítrekað að við þyrftum að finna tíma til að ganga frá þessu máli - sem var þá sjálfsagt fastráðning eða eitthvað í þá veruna, en ég vildi ræða launamál, vinnutíma (sem mér fannst fulllangur) og sitthvað fleira. Síðasta mánuðinn var ég reyndar ekki í fréttamennsku, heldur með umsjón með sérblöðum. Mér fannst það ekki ganga upp að vera með ábyrgð og enn á sumarmannskaupi. En nóg um það.

En síðan gerðist það einn daginn að ónefndur framkvæmdastjóri hringdi í téðan "vitlausasta blaðamann í sögu Fréttablaðsins"  og bað mig að taka að mér útgáfuverkefni fyrir sig. Launakjörin voru trúlega 3-4falt betri, vinnutíminn eins og ég vildi hafa hann svo fremi að dagsetningar stæðust. Með það hætti ég, en vann þó viku í viðbót af tómri samviskusemi. 

Og þar með er það frá. En ég vil líka nota tækifærið og taka fyrir kommentið um hattinn minn - ég tók það svolítið nærrri mér: "Og hattur gerir menn ekki að gáfumönnum.  Bara kjánalega útlítandi uppskafningum!"

Svo mörg voru þau orð. Þau eru held ég á nokkrum misskilningi byggð. Það hvort hattur gerir mann gáfu- eða kjánalegan hlýtur að ráðast af því hvernig hann er borinn. Og eins og hver einasti heilvita nafnlaus kommentari hlýtur að sjá hér þá ber ég minn einkar gáfulega. Cool

 


Grindvísk Úngmenni

Hvað er annars aftur málið með þetta lið úr Grindavík? Er brennuhasar
af einhverju tagi ekki búinn að vera árviss viðburður þar þetta leyti
árs?
mbl.is Kveikt í bálkesti í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr jólafríi

Úr því maður er kominn úr jólafríinu er um að gera að skrifa eitthvað - ekki satt?

Fyrir þá sem enn eru í jólafríi mun þetta sjálfsagt vera ekkijólafréttin í ár: Nú hafa fleiri Bandaríkjamenn látist í Írak en þann 9/11.  Síðan er hér áhugaverð leið til að leysa ágreining um sagnfræðileg málefni, hjá vinaþjóðunum fyrir austan. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband