Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Já forsætisráðherra, og fleiri um reykingar

Þetta er síðasti reykingadagurinn - svona þannig séð. Þannig að þessi skets úr eðalþáttunum Já forsætisráðherra er held ég aldeilis málið. 

Og þetta segir held ég allt sem segja þarf um mínar skoðanir á þessu - þeir sem eru í alvörunni á móti þessu eru ekkert síður hjákátlegir en ráðuneytisstjórinn sem talar um sjálfviljugar hugsjónarfórnir smókeranna. :) 

Þið vitið síðan að reykingar geta verið hættulegar heilsunni.


Upp metorðastigann?

Veit það nú ekki. En samt ekki á hverjum degi sem maður ræðir málin við bandarískan háskólaprófessor við virtan skóla í NYC. :)

Orðið á götunni fer á kostum

Ef frá er talið tilkynningin um að það sé aftur að hefja göngu sína fyrir viku hefur það birt tvö skúbb. Annað þeirra var gömul frétt sem Orðið hélt að hefði ekki farið víða (en hafði í rauninni farið út um allt en framhjá orðinu). Hitt var skúbb um að Einar Karl yrði ekki aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, heldur yrði hann ráðgjafi ráðherra. 

Ég get eiginlega ekki stillt mig um að vitna beint í ráðgjafaskúbbið: "Einar Karl Haraldsson var ranglega nefndur sem næsti aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar á bloggi Péturs Gunnarssonar í gær ... "

Orðið af götunni fer altso vel af stað, eða svona næstum því.  

Eða kannski bara eins og við var að búast.  ...


mbl.is Einar Karl ráðinn aðstoðarmaður Össurar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullmola dagsins

á Friðbjörn Orri Ketilsson á bloggi sínu, Fridbjornorri.is.

" Þær eru svipaðar blaðagreinarnar frá þeim þríburum; ku klux klan, nýnasistum og vopnafemínistum.

Nú, og fyrir þá sem eru illa að sér um sérlegar blaðagreinasendingastarfsemi Klu Klux Klan (sem var leynifélag) og nýnasista er rétt að geta þess að þarna er um að ræða lokaorð í pistli gegn feministum, sem ber yfirskriftina Svartir sitji aftast í vagninum


Meira um Lúgóvoj á Youtube

Það er áhugavert að sjá þetta Youtube Myndband: Hver drap Litvinenko. Líklega þáttur sem hefur verið settur á netið.

Þar kemur til að mynda fram að Lúgóvoj þekkti Litvinenko vel og að Litvinenko treysti honum fullkomlega. Einnig að hann hafi verið settur í fangelsi, en komist út og getum leitt að því að þar með hafi hann aftur farið á mála hjá FSG/KGB.  


mbl.is Bretar óska formlega eftir því að Rússar framselji Lúgóvoj
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðið með puttann á púlsinum ...

Orðið fer hamförum þessa dagana og birtir nú skúbb no. tvö síðan það boðaði endurkomu sína fyrir viku. Núna skúbbar það þriggja vikna gamalli frétt um að brúðhjón hafi flutt brúðkaupsveisluna sína vegna auglýsinga Framsóknarflokksins á þaki salsins.

"Það er auðvitað eins og að bera í bakkafullan lækinn að segja fleiri neikvæðar fréttir af Framsóknarflokknum en hér er ein frétt sem hefur ekki farið mjög hátt og birtist á vefnum freisting.is, sem er fréttavefur um mat og vín, rétt fyrir kosningar. "

Það er reyndar kapituli út af fyrir sig að koma með gömul skúbb, en það er nokkuð ljóst að fréttaritarar Orðsins hafa ekki verið með puttann á púlsinum í kosningabaráttunni, síður en svo. Téð frétt birtist nefnilega í Fréttablaðinu 8. maí síðastliðinn. Hér er hún á vísi, hér er vefblaðið (síða 68, fyrir ofan Paris Hilton). 

Þetta var nefnilega ein af þessum fréttum sem fór út um allt, í tölvupóstum og á msn og var mikið álinkuð á bloggum og fleiri communityvefjum. Hér má til að mynda sjá linkinn á b2.is, sem var settur inn sama dag. 

Já, og fréttin sem Orðið vísar í á Freisting.is birtist að sjálfsögðu daginn eftir að Fréttablaðið skúbbar fréttinni, sumsé 9. maí. Og þá vaknar spurningin hver það er sem ekki les Fréttablaðið en leitar uppi fréttir aftur í tímann á umræðuvef kokka um mat og góðgæti ...

Annars er hérna heitt skúbb að lokum sem þó hefur ekki farið hátt, en má lesa um á róttæklingavefnum Egginni. Það vakti altso mikla reiði í þeirri átt þegar Nói Siríus reyndi með einkar ósmekklegum hætti á dögunum að nota verkalýðsgönguna 1. maí í því skyni að markaðssetja Tópas!

Og síðan er hérna tillaga að bölbæn: Megi Moggabloggið falla fyrir freistingum. :) 


Steinríkur dagsins

Skyldi hann hafa lesið Hellblazer:Good Intention?

Golfbogi og köttur dagsins

Köttur dagsins er með golfboga. Og að minnsta kosti níu líf ...

Síðan vil ég bæta því að mér finnst í rauninni mjög gaman að eiga vini sem kunna á því lagið að fá allar stelpur upp á móti sér, með sama hætti í hvert skipti. :)


Grill ráðgjafinn

Þórbergur Þórðarson lýsti í einhverri sjálfsbóka sinna hvernig hann kom sér upp hópi ráðgjafa/sérfræðinga í kringum sig á afmörkuðum sviðum. Mér finnst það snjallt hjá honum og hef reyndar gert það líka, þó í hversdagslegri viðfangsefnum. Rétt áðan hringdi ég í einn þessara ráðgjafa og spurði hvort hann gæti sagt mér allt sem ég þyrfti að vita um gasgrill.

"Nei, það get ég ekki." 

Stuttu síðar hafði hann sagt mér allt sem ég þurfti að vita um gasgrill. Þannig eiga menn að vera. Þessi maður ætti að verða aðstoðarmaður hjá einhverjum ráðherranum, en reyndar sýnist mér líklegra að Samfylkingin þurfi á svona ráðgjafa að halda.


Furðulegur Mannlífsmoli

Þetta er allnokkuð furðulegur moli hjá Mannlífi um hið Prentsvarta siðleysi Íslandsprents. Við skulum láta það liggja milli hluta hve augljósalega sögunni allri svipar um margt til Lifandi Vísinda. 

Fyrir það fyrsta virðist höfundur molans telja Upplagstölur Sögunnar allrar vera viðskiptaleyndarmál.

Í öðru lagi virðist hann telja fjölda áskrifenda vera viðskiptaleyndarmál - en hafi svo verið finnst mér vandséð að tímaritinu hafi borið nauðsyn til að deila því leyndarmáli með prentsmiðjunni. Kannski þeir ætli næst að halda því fram að útgáfudagarnir séu viðskiptaleyndarmál?

Annars má geta þess að 365 reyndi á sínum tíma að gefa út ReykjavíkMag sem var copycat af Reykjavík Grapevine, sem þá var prentað hjá Ísafoldarprentsmiðju, sem 365 átti helmingshlut í. Og hver á bæði Birting og 365?

Annars hef ég aflað tilboða hjá Íslandsprenti og það er ekki mín tilfinning að þeir hafi mikinn hagnað af verkefnum sem þeir taka að sér í tímaritaprentun, heldur vilji fá sem flest verkefni og mesta veltu. Og þar liggur sjálfsagt ástæðan fyrir því að Birtingur prentar þar en ekki hjá Ísafoldarprentsmiðju. Þannig að það verður ekki mikið tap hjá prentsmiðjunni að missa Ísafold og söguna Alla. En hafi Sagan öll minnkað tekjurnar af Lifandi vísindum gegnir öðru máli ... 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband