Leita í fréttum mbl.is

700 Extra-Hafnfirðingar, samsæri bæjaryfirvalda og bakhlið lýðræðisins

Það hefur loðað við allar þær kosningar sem ég hef tekið þátt hvað gagnrýnin hugsun víkur fljótt: Hið ráðvandasta og sómakærasta greindarfólk fer hvorutveggja í senn að leggja eyrun að frekar villtum kjaftasögum um andstæðinginn sem og að bera út frekar sjoppulegan áróður, eða línur, í möguleg atkvæði sem þeir þykjast geta sótt. (Að maður tali nú ekki um að skrá vini sína í flokkinn með því loforði að þeir verði skráðir út strax að loknum kosningum.)

Og jafnvel þeir sem sjá í gegnum allt heila klabbið kjósa frekar að þegja, enda ekki góð latína að slá á stemminguna hjá sínu liði.  

Það er einhvers staðar úr þessari átt sem sagan um 700 viðbótargaflara er komin. Flökkusaga innan úr kosningamiðstöð um villtar smalanir andstæðinga verður að sannleika þegar nokkrir eru búnir að halda henni fram, og einhvers staðar á toppnum trónir kosningastjóri sem fullyrðir þetta á krísufundi kvöldið fyrir kjördag til að demonísera andstæðinginn svo öllum verði ljóst að þeir verði að koma hverjum einasta álverssinna á kjörstað. Það er líklega aukaatriði hvort þeir sem halda þessu að fólki vita betur eða trúa þessu í hita leiksins, því þetta er bakhliðin á lýðræðinu sem er hampað svo mjög, og helsti gallinn við það að setja raunveruleg deilumál í kosningu. 

Við skulum hafa það í huga að þetta er ekki aðeins ásökun um smölun sem er í hæsta máta vafasöm, þó hún stangist ekki á við lög. Forystumanni samtaka sem vinnur markvisst í kosningu af þessu tagi hlýtur að vera það ljóst við hvaða dag kjörskráin er miðuð. Það virðist því um að ræða ásakanir um samsæri, sem umsjónarmenn kosninganna hafi tekið þátt í.  


mbl.is Hagur Hafnarfjarðar segir brögð í tafli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Bæjarstjórinn sagði í viðtali í morgun að 300 hafi flutt lögheimilið sitt til Hafnarfjarðar frá 1.des 2006 og 170 frá því að kosningabaráttan hófst og þar af stór hluti börn sem ekki hafa kosningarétt...

Júlíus Garðar Júlíusson, 2.4.2007 kl. 11:25

2 Smámynd: Svansson

Já, sá fréttina, og hann auðvitað neitaði þessu af töluverðri festu, enda þúngar ásakanir þarna á ferðinni. 

Svansson, 2.4.2007 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband