Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Vibbi úr kommentakerfi vitlausasta blaðamanns í sögu Fréttablaðsins. :)

Þetta er meðal þess sem ég fann í kommentakerfinu mínu í dag. Það eina sem ég hef um málið að segja er að gefa höfundinum einn stóran broskall. Grin

Jú, og svo líka það að ég ætla áfram að hafa kommentakerfið galopið án þess að tölvupóstsstaðfestingar og álíka óþarfa sé þörf, enda hefur það aldrei verið minn stíll að láta fæðingarhálfvita af þessu tagi eyðileggja jólaskapið sem maður óhjákvæmilega kemst í við að vera hástökkvari Moggabloggsins. Devil

"Það er nú gaman að lesa þetta nýja blogg þitt, mun skemmtilegra en það gamla. 

Hérna ferðu sko hamförum í því að monta þig af vinsældum þínum sem bloggari en innihaldið á síðunni er heldur rýrt.  Eintóm lygaþvæla og upphrópanir! 

Þá finnst mér gaman að sjá að þú titlir þig blaðamann.  Mig minnir að þú hafir verið látinn fara af Fréttablaðinu eftir 2 mánuði í starfi þar, enda varstu arfaslakur blaðamaður!!!  Hef heyrt að þú sért einn sá allra vitlausasti sem þangað hefur rekið inn nefið.  Og hafa þeir verið nokkrir vanvitarnir á þeim snepli, enda ekki gerð þar krafa um formlega menntun eða læs, eins og í þínu tilfelli.

Reyndar held ég að þú ættir að hætta að blogga.  Ættir frekar að halda áfram að vera skúffuskáld og dreyma um frama og frægð á þeim vettvangi.  Þegar þú skrifar um eitthvað annað en þinn þrönga og óspennandi hversdagsleika (nú er ég að vitna í hitt bloggið þitt, gott að ég hef ekki aðgang af því læsta: er þar fjallað um saurlífi?) þá er það pínlegt aflestrar.  Svona eins og dagbók einhvers með heilkenni sem ég nefni ekki hérna.  

Og hattur gerir menn ekki að gáfumönnum.  Bara kjánalega útlítandi uppskafningum!

Hættu svo þessum fucking broskörlum!!!  Það eru bara táningsstúlkur sem nota svoleiðis subbuskap.  Ekki fullorðnir karlmenn."

Tounge

 


Jón Baldvin bilaður í símanum kvöld eftir kvöld?

Muni ég rétt fréttirnar lýsti Jón Baldvin því þegar fyrrv. starfsmaður símans hringdi í hann og lýsti því hvernig einhver hefði setið í tengiboxinu kvöld eftir kvöld - og hlustað. Síðan stökk hann frá, og þá hafi starfsmaðurinn laumast í heyrnartólin, og heyrt Jón Baldvin tala í símann. 

Greinilega var Jón Baldvin ekki að ljúga, eins og margir héldu undireins fram þegar hann greindi frá þessu, heldur atvikið og símtalið ekta. Starfsmaðurinn virðist hafa vitnað um þetta, og síðan kemur í ljós að "hlustarinn" var í bilanaþjónustu. Það var og. 

Þetta, eins og flest annað sem fram hefur komið, ber að sama brunni. Það virðist liggja fiskur undir steini, en samt enn engin konkrít sönnun. 


mbl.is Ekkert sem studdi ummæli um hleranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng frásögn af fótbroti í Ísafold - það segir Landsinn

Landlæknisembættið fullyrðir að rangt sé sagt frá fótbrotinu í síðustu Ísafold. Getur það verið?

Það er í það minnsta ekki sagt frá hinu rétta í málinu, ef til vill er það samt viðkæmt?.  


mbl.is Röng frásögn af beinbroti vistmanns á Grund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, Trackback Fídus takk

já, eins og við Tómas ha? ræddum í gær er það efst á mínum óskalista í viðbætur við Moggabloggin að fá inn Trackback fídus.

Við gætum fengið valmöguleika á annarra blogg, rétt eins og fréttirnar þar við sjáum blogga um frétt táknið. Síðan myndi sjást á bloggi þess sem við linkum á alla aðra moggabloggara sem linka á hann.

Nánar tiltekið að vér innherjar gætum trakkbakkað hver annan, þa. ef ég linka á Tomma sjáist á hans bloggi að ég sé að linka á hann. ;) 


Að velta öðrum

Og þá er minn orðinn no. 27, næstur á eftir Birni.is. Verð trúlega búinn að velta honum úr sessi fyrir lok hefðbundins vinnudags. Það verður þá sjálfsagt gott dagsverk, enda má kannski segja að þarna sé um gamlan draum að ræða. ;)

Flugumferðastjórapakkið

... er held ég alveg með meira en nóg í laun og ætti að geta gengið að samningum eins og allir aðrir verðandi starfsmenn flugstoða. Það er út í hött að einn hópur geti trekk í trekk sett allt heila klabbið í gíslingu vegna utanaðkomandi kringumstæðna.

mbl.is Tillaga að samkomulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki mikið mál

Sem stendur er undirritaður Svansson, eftir tveggja sólarhringa moggabloggun, er orðinn no. 30 á listanum yfir vinsælustu blogginu síðustu 7 daga. Það er eitthvað, ekki satt?

Svo maður spyr: Hvað hafa wannabe-in og allir hinir eiginlega haft fyrir stafni meðan þeir biðu hingaðkomu minnar. ;)


Feitt skúbb - Kompás viðurkennir að dópa upp viðmælendur

"Það er ekki rétt að við höfum gefið þeim Conta," segir Jóhannes Kr. Kristjánsson ritstjóri Kompáss. "Enda hefðu varla fengist trúverðug og nothæf viðtöl út úr því. Þess í stað gáfum við umræddum viðmælendum Penta, enda virtist það mun líklegra til árangurs."

Penta er stytting á Sodium Pentatol, sem víða hefur verið notað sem sannleikslyf, en Conta er slanguryrðið sem langt leiddir fíklar nota yfir Contalgin. "Líklega hefur þessum ágætu viðmælendum okkar einfaldlega misheyrst og þeir haldið því fram í góðri trú að um Conta væri að ræða. Þeir eru því eftir sem áður fullkomlega trúverðugir sem nafnlausir heimildarmenn." 

Jóhann viðurkennir að þetta kunni að vera gagnrýnivert og bætir því við að starfsmenn Kompáss hafi gert ákveðin mistök. "Við gerðum okkur ekki grein fyrir aukaverkununum og sáum því ekki fyrir að þeir myndu fara beint á Sogn og greina læknunum frá þessum viðskiptum."  

Af öðrum feitum skúbbum í dag er það helst í fréttum að Sigmundur Ernir Rúnarsson lýsti því yfir í morgun að það væri algengt að fjölmiðlar hér á landi greiddu mönnum fyrir viðtöl. Ekki hefur enn fengist upplýst hvort hann var undir áhrifum Penta þegar hann lét þau ummæli falla. 


Dr. Geir og Hr. Haarde

Ég nennti reyndar ómögulega að lesa þennan Múrpistil. En fyrirsögnin er fádæma vel heppnuð og það er eitthvað.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband